Innlent

Gert er ráð fyrir röskun á flugi Icelandair

Slitnað hefur upp úr viðræðum Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair um nýjan kjarasamning, en samninganefndirnar sátu á fundi þar til um fjögurleytið í dag, án árangurs.

Ekki er búið að boða til nýs fundar og því er útlit fyrir að flugvirkjar leggi niður störf milli klukkan sex og tíu í fyrramálið. Gert er ráð fyrir að röskun verði á flugi Icelandair á morgun vegna verkfallsins.

Icelandair hvetur viðskiptavini sína til þess að fylgjast vel með komu- og brottfarartímum frá klukkan sex í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×