Innlent

Fiskvinnslufólk í Eyjafirði sendir þingmönnum bréf

„Við undirrituð, starfsmenn í fiskvinnslu í Eyjafirði, mótmælum þeim ásetningi stjórnvalda að flytja störfin okkar til einhverra annarra með tilflutningi aflaheimilda frá einum stað til annars. Þannig er vegið að fjárhagslegri afkomu  hundruða fjölskyldna á Eyjafjarðarsvæðinu," segir í bréfi sem sent hefur verið öllum þingmönnum norðaustur-kjördæmis.

Meðfylgjandi eru undirskriftir 241 starfsmanna í fiskvinnslu í Eyjafirði og Fjallabyggð.

„Í þeim lagafrumvörpum  um stjórn fiskveiða sem nú eru til umfjöllunar er fjallað ítarlega um fiskveiðar og hvernig þeim skuli háttað. Í engu er tekið tillit til þeirra sem starfa við fiskvinnslu í landi, enda kemur orðið fiskvinnsla aldrei fyrir í þessum lagatextum. Með því er áratuga reynslu okkar og  þekkingu í fiskvinnslu enginn sómi sýndur. Fiskvinnslan verður færð aftur um áratugi  með tilheyrandi verðmætatapi fyrir þjóðarbúið allt," segir í bréfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×