Innlent

Teknar með tvö kíló af marijúana og ungabarn í bílnum

Konurnar voru teknar á Suðurlandsbraut en í bílnum þeirra fundust 2 kg af marijúana.
Konurnar voru teknar á Suðurlandsbraut en í bílnum þeirra fundust 2 kg af marijúana.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á 2 kg af marijúana og nokkrar kannabisplöntur við leit í bifreið sem stöðvuð var á Suðurlandsvegi á dögunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Grunsemdir vöknuðu um fíkniefnamisferli þegar bifreiðin var stöðvuð við reglubundið eftirlit en sterka kannabislykt var að finna úr bifreiðinni. Tvær konur á þrítugsaldri, ökumaður og farþegi bifreiðarinnar, voru handteknar og færðar til vistunar. Í bifreiðinni var einnig ungt barn ökumannsins og var barnaverndaryfrvöldum gert viðvart vegna þess.

Í kjölfar fíkniefnafundarins var farið í húsleit á heimili annarrar konunnar. Sambýlismaður hennar var handtekinn við heimilið en í bifreið hans fannst búnaður sem lögregla ætlar að hafi verið notaður við kannabisframleiðsluna.

Við yfirheyrslur viðurkenndi önnur konan aðild sína að málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×