Innlent

Björgunarsveit aðstoðaði þrjá ferðamenn

Björgunarsveit var kölluð út seint í gærkvöldi til að aðstoða þrjá erlenda ferðamenn, sem sátu fastir í snjóskafli í jepplingi sínum á Dómadalsleið, skammt frá Landmannalaugum.

Leiðangurinn gekk vel og amaði ekkert að ferðamönnunum, sem björgunarsveitarmenn fylgdu til byggða. Leiðin er lokuð samkvæmt vef Vegagerðarinnar, vegna snjóa og aurbleytu, en ferðamennirnir áttuðu sig ekki á því.

Flest allir hálendisvegir eru enn ófærir af sömu ástæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×