Boðar nýja stóriðjusamninga á komandi mánuðum 6. júní 2011 18:55
Iðnaðarráðherra sagði á Alþingi í dag alveg ljóst að samningar um stóriðju í Þingeyjarsýslum yrðu gerðir á komandi mánuðum. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir þetta enn eitt loforðið sem ríkisstjórnin geti ekki staðið við. Forsætisráðherra boðaði nýlega í ræðu á fundi Samfylkingarinnar að framundan væru framkvæmdir í orkufrekum iðnaði fyrir þrjú til fjögurhundruð milljarða króna á næstu þremur til fimm árum. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, óskaði eftir því að iðnaðarráðherra útskýrði þetta nánar. Katrín Júlíusdótti iðnaðarráðherra sagði að forsætisráðherra hefði í ræðu sinni væntanlega verið að vísa í þá staðreynd að mál væru komin vel á veg á Norðausturlandi. "Það er alveg ljóst að á komandi mánuðum verður gert samkomulag við einn eða fleiri kaupendur að orkunni sem til er í Þingeyjarsýslunum," sagði Katrín. Ráðherrann gat þó ekki, frekar en í síðustu viku, nefnt hvaða verkefni þetta væru. Jón Gunnarsson benti á að ríkisstjórnin væri með frumvarp fyrir Alþingi um að þrengja nýtingartíma orkuauðlinda, sem myndi gera virkjanir óhagkvæmari og draga úr samkeppnishæfni landsins. "Ég held því, virðulegi forseti, að allar þær bjartsýnisspár sem hér er verið að ræða - fjölmargt á döfinni, nýir virkjunarkostir - séu bara enn eitt loforðið sem ríkisstjórnin getur ekki staðið við," sagði Jón. Ráðherrann sagði að orkusamningar væru ekki gerðir í þingsölum og þessvegna væri það ekki hlutverk þingmanna að úttala sig um einstaka aðila. "Þess vegna hljómar þetta mögulega eins og við höfum engar fréttir að færa en fréttirnar eru þær að góður gangur er í viðræðum milli orkusala og orkukaupenda hér í landinu," sagði Katrín.
Mest lesið Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Innlent Kajakræðarar í hættu hífðir upp Innlent Önnur djúp lægð á leiðinni Veður Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Erlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Bíll alelda á Hellisheiði Innlent Ósáttir við að vera vísað frá Rússlandi gegn vilja sínum Erlent Fleiri fréttir Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Hnífstunguárás á Akureyri og vandræði hjá Sjálfstæðisflokknum Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Eitthundrað ár frá fyrsta flugi til Íslands Sjá meira