Innlent

Tveir björgunarsveitarmenn hætt komnir: Hélt ég myndi drepast þarna

Andri Ólafsson skrifar
Tveir björgunarsveitarmenn frá Hvammstanga voru hætt komnir eftir að félagar þeirra gleymdu þeim á hafi úti. Mennirnir velktust um í sjónum í næstum 40 mínútum áður en þeim var bjargað. Annar þeirra var þá orðinn mjög kaldur og þrekaður.

Í tilefni sjómannadagsins hélt björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga sýningu fyrir bæjarbúa. Siglt var með fólk út á Miðfjörð og björgunarsveitarmenn í blautbúningum hentu sér út í sjó og félagar þeirra á slöngubátum sýndu hvernig björgun fer fram á hafi úti.

Þegar sýningunni lauk var siglt aftur í land. Þegar þangað var komið uppgötvaðist að tveir björgunarsveitarmenn höfðu orðið eftir. Þeir biðu í sjónum og ráku hratt frá þeim stað þar sem þeir voru skildir eftir. Annar þeirra fékk vatn inn á flotgallann og kólnaði fljótt. Spurður hvort þeir hafi getað talað saman svarar Ævar Marteinsson, björgunarsveitarmaður:

Ævar Marteinsson.
„Nei, það var svo mikil vindur að það heyrðist ekkert. Við heyrðum óminn í hvorum öðrum en greindum engin orð. Svo fjarlægðist hann hratt því hann var orðinn svo máttvana."

Ævar segir að þá hafi rekið hátt í 40 mínútur áður en félagar þeirra komu þeim til bjargar. Þeir voru þá báðir fluttir á heilsugæsluna, þar sem félagi Ævars liggur enn.

Formaður Björgunarsveitar Húna segir að misskilningur og mannleg mistök hafi orði til þess að svona fór.

Ævar segist enn vera að jafna sig, en tilfinningin þegar hann áttaði sig á því að þeir félagarnir höfðu verið skildir eftir var honum erfið.

„Fyrst þegar ég áttaði mig á hlutunum, að ég væri einn úti á hafi, sturlaðist ég næstum því. Svo róaðist ég niður. Ég fékk í raun hræðslukast, því ég hélt ég myndi bara drepast þarna," segir Ævar sem óttaðist sannarlega um líf sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×