Innlent

Tveir ölvaðir ökumenn stöðvaðir - skemmtanahald fer vel fram

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Einn ökumaður var tekinn fyrir ölvunarakstur á Akureyri í nótt. Fjölmenni er í bænum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í tilefni af sjómannadeginum. Allt skemmtanahald hefur þó farið vel fram.

Þá var einnig ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Nítján ára gamall ökumaður var stöðvaður á Óseyrarbrúnni á milli Þorlákshafnar og Eyrabakka í nótt.

Ökumaðurinn reyndist ölvaður og var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða. Hafnardagar eru í Þorlákshöfn í tilefni af sjómannadeginum og hefur skemmtanahald einnig farið vel fram þar í bæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×