Innlent

Baugsmálið slær í gegn á Íslandi

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Bók Björns Bjarnasonar um Baugsmálið er söluhæsta bókin á Íslandi samkvæmt lista Eymundsson. Björn segist ekki vera hlutlaus greinandi í ljósi stöðu sinnar en segist ekki halda neinum skoðunum að lesandanum. En hvers vegna skrifaði hann bókina? „Ég skrifaði bókina til að ná öllum þessum þráðum saman. Stjórnmálunum, viðskiptunum, fjölmiðlunum og réttarhöldunum. Svo það væri til heildaryfirlit yfir þetta mál," segir Björn.

Rithöfundar hafa sumir hverjir hefðir eða venjur við skrifin. Sumir hlaupa, eða gera sömu hluti á hverjum degi áður en þeir sitjast við skriftir. Hefur þú eitthvað „ritúal" við skrifin? „Ég syndi nú á hverjum degi, en það er ekki endilega tengt ritstörfunum. En ég reyni að sinna ritstörfum á hverjum degi, hvort sem það eru dagbókarskrif eða önnur skrif. Auðvitað hef ég haldið mér í þjálfun á stjórnmálaárunum. Ég hef haldið úti minni vefsíðu."

Björn hefur skrifað um Baug og Baugsmálið árum saman á vefsíðuna sína, bjorn.is en hann gagnrýndi ítrekað eigendur fyrirtækisins opinberlega meðan hann starfaði í stjórnmálum. Opinberar deilur settu mark sitt bæði Björn og aðstandendur Baugs en einn hluthafa Baugs, Jóhannes Jónsson, birti heilsíðuauglýsingu í dagblaði þar sem hann hvatti stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins til að sniðganga Björn í prófkjöri. Þetta gerðist á nákvæmlega sama tíma og helsti keppinautur Björns í prófkjörinu, Guðlaugur Þór Þórðarson, hafði þegið styrki, m.a frá Baugi.

Lítur ekki á sig sem hlautlausan greinanda


Líturðu á þig sem hlutlausan greinanda í ljósi þess sem þú hefur áður skrifað um málið? „Ég er náttúrulega ekki hlutlaus greinandi þegar litið er á mína stöðu. En ég reyndi að skrifa þessa bók þannig að ég væri ekki að halda einverri skoðunum að lesandanum heldur leyfi lesandanum að draga sínar ályktanir. Það held ég að sé megin gildi þessarar bókar að fá allt þetta stóra mál á einn stað."

Núna ertu í viðtali hjá mér á stöð sem þú hefur alltaf kallað Baugsmiðil. Hvernig líður þér með það? „Ég hef alltaf verið á Baugsmiðlunum í öll þessi ár. Þannig að mér líður ekkert illa með það. Spurningin er, hvernig líður þeim sem störfuðu á Baugsmiðlunum og það er náttúrulega fjallað um það í bókinni," segir Björn, en mikill hluti bókarinnar varpar ákveðnu ljósi á fjölmiðla árin fyrir hrun. Björn segir að margt hafi breyst og önnur viðhorf séu nú ríkjandi.

Nú er Baugur gjaldþrota fyrirtæki, er ekki kominn tími á að hætta að tala um Baugsmiðla? „Mér finnst nú að þetta hafi fest við miðlana og það sé þannig að mönnum sé ekkert lengur jafn illa við það eins og áður að talað sé um þá sem slíka," segir Björn. thorbjorn@stod2.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×