Löggan mætir í Laugardalinn á morgun 3. júní 2011 16:47 Lögreglan sektaði fjölmarga ökumenn í Laugardalnum um síðustu helgi Mynd/Lögreglan
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þetta sé nefnt sérstaklega vegna landsleiks Íslendinga og Dana í knattspyrnu sem fram fer á Laugardalsvellinum annað kvöld. Reynsla síðustu ára sýnir að bílastæði við völlinn eru ekki fullnýtt þegar ýmsir stórviðburðir fara þar fram. Þess í stað hafa margir lagt það í vana sinn að leggja ólöglega á Reykjavegi og Engjavegi svo aðeins tvær götur séu nefndar. Sömuleiðis er iðulega lagt ólöglega á ýmis grassvæði í Laugardalnum. Lögreglan ítrekar því tilmæli sín til ökumanna og hvetur þá til að nýta bílastæðin til fulls. Að öðrum kosti mega ökumenn búast við sektum vegna stöðubrota en gjaldið, 5000 krónur, rennur í Bílastæðasjóð. Um síðustu helgi var ástandið í Laugardalnum, eins og að framan er lýst. Þá lögðu margir ólöglega þrátt fyrir að mörg bílastæði væru í boði. Þeim vallargestum sem fá ekki bílastæði við Laugardalsvöllinn sjálfan er bent á að í nágrenni hans eru víða ágæt bílastæði. Sömuleiðis er minnt á að veðurútlitið er þannig að engum ætti að muna um að leggja smáspöl frá leikvanginum og ganga í fáeinar mínútur að vellinum, segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Mest lesið Lögregla lýsir eftir Helga Innlent Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Tugir hægriöfgamanna handteknir í óeirðum í Bretlandi Erlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Leiðindaveður um allt land vegna djúprar lægðar Veður Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Erlent Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Innlent Kajakræðarar í hættu hífðir upp Innlent Fleiri fréttir Björgunarbátur ræstur út til leitar á sjó Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Hnífstunguárás á Akureyri og vandræði hjá Sjálfstæðisflokknum Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sjá meira