Innlent

Guðbergur á leið til Spánar að vitja auðæfa

SB skrifar
Guðbergur Bergsson, rithöfundur og auðkýfingur. Mynd/GVA
Guðbergur Bergsson, rithöfundur og auðkýfingur. Mynd/GVA
Guðbergur Bergsson er orðinn ríkur maður eftir að hafa fengið fjölda jarða og eigna á Spáni í arf frá sambýlismanni sínum.



„Ég fer til Spánar í vikunni til að ganga frá þessu," segir Guðbergur Bergsson rithöfundur en fréttir af nýfengnum auðæfum hans hafa hlotið mikla athygli. Við fráfall sambýlismanns Guðbergs sem hét Jamie Salinas Bonmati fékk hann í arf fjölda eigna á Spáni. Þar á meðal jarðir, fasteignir.

En hver var sambýlismaður Guðbergs sem arfleiddi hann hinum miklu eignum?

Faðir Jaime hét Pedro Salinas, var frægt ljóðskáld og á heimili fjölskyldunnar í Madríd vöndu Lorca og fleiri stórskáld komu sínar. Í grein sem birtist í Tímanum árið 1957 lýsir Guðbergur því þegar hann hittir manninn, sem átti eftir að verða lífsförunautur hans fyrst, á búgarði fjölskyldunnar í Lo Cruz. Guðbergur lýsir því hvernig fjölskyldan hafi átt fjölda jarða á svæðinu og segir Jamie Salinas hafa þjáðst af samviskubiti yfirstéttarmannsins, hafi viljað lifa með bændunum og hverfa aftur til náttúrunnar.

Í viðtali við DV í dag segist Guðbergur hafa ákveðið að afsala sér eitthvað af eignunum en ætli að halda öðrum. DV staðhæfir að eignir Guðbergs séu afar verðmætar. Rithöfundurinn Guðbergur sé því í raun orðinn auðkýfingur.

Guðbergur er þó hógvær í viðtalinu. Hann virðist deila lífspeki með manninum sem hann elskaði, segist hafa fundið sitt innra frelsi sem barn og þá í tengslum við náttúruna, ilmi af blómum og litum dagsins. Fegurðin búi í hinu smáa og það hafi mótað hann sem manneskju, sem rithöfund - Íslendingar séu haldnir þrá eftir hinu stórkostlega en sjá ekki fegurðina allt í kringum sig.

Segir rithöfundurinn Guðbergur - heiðursborgari í Grindavík og milljarðamæringur á Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×