Innlent

Uppselt í flestar bestu árnar

Uppselt er í flestar bestu og dýrustu laxveiðiár hér á landi í sumar, en veiðin hefst í Norðurá og Blöndu á sunnudag. Upp úr því verður svo ein áin af annarri opnuð og eru veiðimenn almennt bjartsýnir á góða veiði í sumar.

Sérstaklega vænta þeir þess að árnar verði vatnsmeiri nú en í fyrra, en langvarandi þurrka- og hlýindatími í maí í fyrra varð til þess að margar ár urðu mjög vatnslitlar þegar leið á sumarið. Þá mun jarðvatnsstaðan víða vera mun hærri en á sama tíma í fyrra, sem lík ætti að tryggja gott rennsli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×