Innlent

Vill takmarka eggjatöku og veiðar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lundavarp hefur misfarist undanfarin ár vegna lítillar fæðu. Mynd/ Stefán.
Lundavarp hefur misfarist undanfarin ár vegna lítillar fæðu. Mynd/ Stefán.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra beinir þeim tilmælum til landeigenda og handhafa hlunnindakorta að eggjataka og hlunnindaveiðar á svartfugli í sumar verði takmarkaðar eða felldar niður á þessu ári. Ástæðan er lélegt ástands fuglastofnanna og fæðubrestur undanfarin ár. Frekari aðgerðir verða skoðaðar í kjölfarið í samráði við vísindamenn, stofnanir og hagsmunaaðila til þess að tryggja betri viðgang sjófuglastofna og sjálfbærar veiðar á þeim.

Þá hefur umhverfisráðherra ákveðið, í kjölfar ábendingar frá Fuglavernd og á grundvelli upplýsinga um lélegt ástand margra sjófuglastofna, að skoða hvort ástæða sé til þess að takmarka veiðitíma á lunda og fleiri tegundum svartfugla á vorin.

Veruleg fækkun hefur verið í nokkrum stofnum sjófugla og segja má að hrun hafi verið í lundastofninum, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. Lélegur varpárangur hefur verið hjá lunda, sérstaklega á sunnanverðu landinu, síðastliðin 4-5 ár og í fyrra varð algjör viðkomubrestur í lundavarpi á Suðurlandi. Stuttnefju hefur fækkað um allt land og álku og langvíu um sunnan- og vestanvert landið, en stofnar þeirra hafa haldið nokkuð í horfinu um norðanvert landið.

Fæðuskortur ástæða fækkunar Orsakir fækkunar og viðkomubrests sjófugla virðast að mestu leyti vera vegna fæðuskorts, en fuglarnir lifa einkum á sandsíli og loðnu. Hrun varð á sandsílastofninum árið 2000 og hefur hann ekki náð sér á strik síðan. Loðnustofninn hefur verið í lægð síðastliðinn áratug og breytingar hafa verið á göngumynstri loðnunnar.

Þótt eggjataka og veiði teljist ekki helsti áhrifavaldur breytinganna eru þetta þeir þættir sem hægt er að hafa áhrif á til þess að styrkja stofnana og draga úr álagi á fuglinn, einkum á varptíma.

Frekari aðgerðir til að verndunar stofnum svartfugla eru í skoðun. Svo sem að setja reglur um hlunnindaveiði og nýtingu að sumarlagi, stækka verndarsvæði í kringum fuglabjörg og heimila ekki söfnun eggja til dýragarða. Einnig verður skoðað hvort ástæða sé til þess að takmarka veiðitíma annarra tegunda sjófugla, en heimilt er nú að veiða fýl, dílaskarf, hettumáf, hvítmáf, ritu og toppskarf frá 1. september til 15. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×