Innlent

Skattlagning í hrópandi andstöðu við loforð ríkisstjórnarinnar

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Mynd/GVA
Áform um skattlagningu á lífeyri er forsendubrestur í nýgerðum kjarasamningum, að mati Alþýðusambandsins. Ljóst sé að slík skattlagning mun leiða til skerðinga á áunnum lífeyrisréttindum félagsmanna sambandsins á meðan stjórnvöld ábyrgist lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra funduðu síðdegis í gær með Gylfa Arnbjörnssyni forseta ASÍ og Signýju Jóhannesdóttur varaforseta sambandsins.

Á fundinum komu Gylfi og Signý á framfæri megnri óánægju Alþýðusambandsins með áform ríkisstjórnarinnar um að leggja skatt á lífeyrissjóðina til að fjármagna sérstakar vaxtabætur á þessu og næsta ári, að því er fram kemur á vef ASÍ.

Þar segir ennfremur: „Það skýtur skökku við að skattleggja einungis þá elli- og örorkulífeyrisþega sem minnst réttindi hafa og var ríkisstjórnin minnt á, að í nýútgefinni yfirlýsingu hennar í tengslum við gerð kjarasamninga – þar sem jöfnun lífeyrisréttinda var eitt af aðalmarkmiðum aðildarfélaga ASÍ – hét ríkisstjórnin því að vinna að þessu markmiði m.a. með inngreiðslum til að jafna uppávið lífeyrisréttindi í almenna kerfinu. Afstaða miðstjórnar ASÍ er skýr í þessu máli, þessi skattlagning er í hrópandi andstöðu við yfirlýsingu og fyrirheit ríkisstjórnarinnar og væri klár forsendubrestur gagnvart félagsmönnum ASÍ og nýgerðum kjarasamningum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×