Erlent

Mladic kominn til Haag

Ratko Mladic, sem sakaður er um þjóðarmorð í Bosníustríðinu árið 1995 hefur eytt fyrstu nótt sinni í fangaklefa í Haag í Hollandi en þangað var hann fluttur í gær eftir að áfrýjun hans var hafnað. Hinn 69 ára gamli fyrrverandi hershöfðingi, sem handtekinn var í síðustu viku, mun mæta fyrir rétt strax á næstu dögum.

Mladic er meðal annars sakaður um að hafa fyrirskipað morð á tæplega átta þúsund múslímskum mönnum og drengjum í bænum Srebrenica og hefur hann verið á flótta undan réttvísinni síðustu sextán ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×