Innlent

Einar vill að Jón rífi kvótafrumvörpin

Mynd/Róbert R.
Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra segir að núverandi ráðherra ætti að fara niður í ráðuneyti sitt og rífa frumvörpin um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, nú þegar sérfræðingar á hans vegum hafa gagnrýnt frumvörpin harðlega.

Fimm manna sérfræðihópur á vegum Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegsráðherra, sem hann fól að fara yfir frumvörp hans um stjórn fiskveiða, gerir margar og alvarlegar athugasemdir við frumvörpin. Nái þau fram að ganga vinni þau gegn hagræðingu í greininni, geri nýliðun erfiðari og fleira.

Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í sjávarútvegsnefnd, segir þessa gagnrýni ekki koma sér á óvart og þetta sé rothögg á sjávarútvegsstefnu ríkisstjórnarinnar.

„Gleymum því ekki að ríkisstjórnin kynnti hugmyndir sínar um fyrningarleið, en þær voru slegnar út af borðinu af sérfræðingum. Þá farið í að búa til þessi frumvörp og þau voru lögð fram án þess að menn skoðuðu afleiðingar þess. Nú er búið að gera það og þá kemur í ljós að sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar er stórhættuleg þjóðfélaginu. Ég veit ekki hvort ríkisstjórnin lærir af þessum mistökum sínum."

Einar segja ráðherrann byrja á röngum enda, með því að leggja frumvörpin fram fyrst og fá svo sérfræðiálit. „Þetta eru vinnubrögð vilta vestursins, að skjóta fyrst og spyrja svo. Þetta er ekki einkamál Jóns Bjarnasonar. Forystumenn ríkisstjórnarinnar ,fjármálaráðherra og forsætisráðherrra, önduðu ofan í hálsmál sjávarútvegsráðherra allan tímann á meðan var verið að búa til þessi frumvörp. Þau eru ekki síður ábyrg fyrir þessum dæmalausu vinnubrögðum."


Tengdar fréttir

Segir breytingar ógna fjárhagslegri stöðu Sjálfstæðisflokksins

Allar breytingar á kvótakerfinu koma sér illa fyrir Sjálfstæðisflokkinn og ógnar fjárhagslegri stöðu flokksins, að mati þingmanns VG. Hann segir að það sé eins og að slíta pólitíska hjartað úr Framsóknarflokknum að breyta kvótakerfinu og að það hafi þurft konu að vestan til að berja í gegn breytingar á kvótakerfinu, en þar á þingmaðurinn við Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, formann sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. Þetta er meðal þess sem fram kemur í pistli Björns Vals Gíslasonar, þingmanns VG, á heimasíðu hans.

Falleinkunn á frumvarp Jóns

Frumvarp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um stjórn fiskveiða fær afar harða gagnrýni frá sérfræðihópi sem Jón skipaði.

Vill sjá hausa fjúka

„Í ríkisstjórnum þar sem menn gerðu faglegar kröfur og kysu gagnsæ vinnubrögð væru hausar farnir að fjúka, eftir þá útreið sem sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar hefur fengið," segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um skýrslu hagfræðinga um kvótfrumvarp ríkisstjórnarinnar. Sérfræðinganefndin gagnrýnir frumvarp núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóns Bjarnasonar, um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar, að mati sérfræðinganna.

Breytingar á kvótakerfinu má ekki bara skoða út frá hagfræði

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, segir að breytingar á kvótakerfinu eigi ekki einungis að skoða út frá hagfræði. Einnig verði að huga að samfélagslegum breytingum. Hún hefur fulla trú á að umtalsverðar breytingar verði gerðar á kvótakerfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×