Innlent

Hafnaði á skeri og lenti í sjónum

Maðurinn missti stjórn á sæþotu fyrir utan Arnarnes í Garðabæ. Myndin er úr safni.
Maðurinn missti stjórn á sæþotu fyrir utan Arnarnes í Garðabæ. Myndin er úr safni.
Karlmaður missti stjórn á sæþotu fyrir utan Arnarnes í Garðabæ í gærkvöldi með þeim afleiðingum að hann hafnaði á skeri og lenti í sjónum. Maðurinn kom sér af sjálfsdáðum upp á skerið og sat þar fastur í rúman hálftíma. Slökkvilið og björgunarsveitir voru kallaðar út og komu manninum til bjargar. Hann reyndist ómeiddur þrátt fyrir allt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×