Innlent

Hundar sem réðust á konu aflífaðir

Guðrún Guðmundsdóttir. 17 hundar réðust á hana 31. maí sl.
Guðrún Guðmundsdóttir. 17 hundar réðust á hana 31. maí sl.
Hundarnir sem réðust á konu í Reykjanesbæ í lok síðasta mánaðar voru aflífaðir í gær ásamt fleiri hundum sem voru í umsjá eiganda þeirra.

Hópur 17 hunda réðst að Guðrúnu Guðmundsdóttur þann 31. maí síðastliðinn þar sem hún var við eggjatínslu á svæðinu við Rockville á Miðnesheiði. Hún hlaut allmörg bitsár og kærði eiganda hundanna til lögreglu. Á þeim tíma átti eigandinn, sem er kona, að minnsta kosti 24 hunda og fjóra ketti. Bæjarráð Reykjanesbæjar tók málið fyrir nú fyrr í mánuðinum og gaf konunni andmælarétt til mánaðarmóta.

Dýrin þóttu alltof mörg til þess að ein manneskja gæti sinnt þeim, en þau voru mörg hver mjög illa farin. Eigandinn féllst því á að láta lóga öllum hundunum að tveimur undanskildum. Héraðsdýralækni og lögreglu hafa borist allmargar kvartanir vegna dýrahalds konunnar og meðferðar hennar á þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×