Innlent

Lýst eftir pilti og stúlku

Þeir sem vita um Kolbrúnar Sigríðar og Burkna Þórs og eru beðnir um að hringja í lögreglu í síma 444-1000.
Þeir sem vita um Kolbrúnar Sigríðar og Burkna Þórs og eru beðnir um að hringja í lögreglu í síma 444-1000.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Burkna Þór Berglindarsyni og Kolbrúnu Sigríði Kristjánsdóttur en ekki er vitað um ferðir þeirra frá því í hádeginu á fimmtudag þegar þau voru í Árbæjarhverfi.

Kolbrún Sigríður er 15 ára og Burkni Þór 16 ára. Kolbrún var klædd í skærgræna íþróttapeysu, gráar íþróttabuxur og gráa íþróttaskó. Kolbrún er 168 cm að hæð, um 70 kg og með rautt sítt hár. Burkni Þór er oftast í svörtum gallabuxum og dökkum peysum. Hann er um 180 cm að hæð, grannur og með stutt dökkrautt hár.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Burkna Þórs og Kolbrúnar Sigríðar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×