Innlent

Bera börur og safna áheitum

Mynd/Bjarni
Hópur ungmenna frá björgunarsveit Suðurnesja gengur nú meðfram Reykjanesbraut með níðþungur börur en hópurinn lagði af stað í morgun frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð í Reykjavík.

Undanfarna daga hafa ungmennin safnað áheitum í tengslum við gönguna vegna landsmóts unglingadeilda björgunarsveitanna sem fer fram á Dalvík eftir um þrjár vikur.

Klukkan 14 gekk hópurinn fram hjá álverinu í Straumsvík en áætlað er að ungmennin komi til Reykjanesbæjar klukkan rúmlega 19.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×