Innlent

Tveir gistu fangageymslur á Akureyri

Mynd/Stefán
Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á Akureyri en fjöldi lagði leið sína í bæinn og sat að sumbli fram á morgun. Tveir gistu fangageymslur og var einn tekinn fyrir ölvunarakstur. Þá komu nokkur fíkniefnamál inn á borð lögreglu.

Skemmtanahald fór vel fram á höfuðborgarsvæðinu í nótt en þar voru fimm ökumenn stöðvaðir fyrir að keyra undir áhrifum áfengis og aðrir fimm gistu fangageymslur lögreglunnar. Nóttin var að öðru leyti róleg hjá lögregluembættum landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×