Innlent

Fékk á sig torfærubíl

Torfærubíllinn var kyrrstæður og til sýnis þegar hann rann af stað
Torfærubíllinn var kyrrstæður og til sýnis þegar hann rann af stað
Betur fór en á horfðist þegar torfærubíll sem var til sýnis á Selfossi í dag rann af stað og hafnaði á konu sem var að njóta hátíðarhaldanna. Konan er meidd á fæti en talin vera óbrotin.

Torfærubíllinn var ásamt öðrum bílum til sýnis í brekku við hátíðarsvæðið í bænum og leikur grunur á að drengur sem fékk að setjast í bílinn hafi rekið sig í gírstöng með þeim afleiðingum að bíllinn rann af stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×