Innlent

Kviknað í bíl við Hörpu

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrr í kvöld þegar eldur kviknaði í bifreið sem stóð á bílastæðinu við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu í miðbæ Reykjavíkur.

Vel gekk að slökkva eldinn og engin slys urðu á fólki. Töluverðar skemmdir urðu hins vegar á bílnum en upptök eldsins eru enn ókunn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×