Innlent

Hestur stöðvaði umferð við Vesturlandsveg

Vegfarandi tók þessa símamynd, en hrossið sést fyrir miðju ef vel er rýnt
Vegfarandi tók þessa símamynd, en hrossið sést fyrir miðju ef vel er rýnt
Hestur stöðvaði alla umferð við Vesturlandsveginn upp úr hádeginu þar sem hann gerði sig heimakominn á miðjum veginum. Hesturinn hafði sloppið úr gerði sínu við Mosfellsbæ, rétt neðan við Vesturlandsveg. Ökumenn hemluðu snarlega þegar hrossið lét sjá sig en ekki er vitað til þess að nein slys hafi orðið. Nokkrir ökumanna fóru út úr bílum sínum, náðu hestinum og komum honum aftur í gerðið. Umferð um Vesturlandsveginn er því aftur komin í eðlilegt horf eftir smáværilegar tafir í báðar áttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×