Fagna Aldarafmælissjóð 16. júní 2011 20:05 Háskóli Íslands
Háskólaráð Háskóla Íslands fagnar því að stjórnvöld hafi stofnað sérstakan Aldarafmælissjóð fyrir skólann og nýja prófessorsstöðu í nafni Jóns Sigurðssonar í tilefni 100 ára afmælis skólans. Greint var frá því í gær að Ríkisstjórn Íslands og Alþingi hefðu samþykkt að heiðra Háskóla Íslands með 150 milljóna króna stofnframlagi í sérstakan Aldarafmælissjóð. Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir og nýsköpun sem nýtast munu til uppbyggingar atvinnulífs og verðmætasköpunar í þágu íslensks samfélags og þjóðar, eins og segir í yfirlýsingu Ríkisstjórnarinnar og Alþingis. Þá stendur til að setja á fót starfshóp sem gera mun tillögu um framlög í Aldarafmælissjóðinn á árunum 2012-2020. Enn fremur var samþykkt á Alþingi í gær þingsályktunartillaga um stofnun prófessorsstöðu við Háskóla Íslands í nafni Jóns Sigurðssonar, en 200 ár eru frá fæðingu hans. Starfsskyldur prófessorsins verða meðal annars við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða. Háskólaráð Háskóla Íslands fagnaði á fundi sínum í dag þeirri velvild og viðurkenningu sem skólanum er sýnd á aldarafmælinu. „Gjafir Ríkisstjórnar Íslands og Alþingis eru ómetanlegt framlag til að auka þekkingu, vísindastarfsemi, nýsköpun og frumkvöðlahugsun. Það er gleðiefni að stjórnvöld og þingmenn allra flokka skuli vera samtaka um nauðsyn þess að hefja nýja sókn og vera reiðubúnir að fylgja henni eftir í verki með stuðningi við Háskóla Íslands," segir í ályktun háskólaráðs. Ennfremur segir í ályktuninni að „Aldarafmælissjóðurinn er dýrmætt framlag til að gera Háskóla Íslands kleift að hrinda í framkvæmd skýrri framtíðarstefnu sinni og metnaðarfullum vísindamarkmiðum og munu framlög úr honum grundvallast á ströngustu alþjóðlegum mælikvörðum um árangur og gæði."
Mest lesið „Skrýtinn“ höggstaður á Trump sem snýr sér að kynþætti Harris Erlent Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Innlent Gul viðvörun í Eyjum fram á kvöld og leiðindaspá áfram Veður Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Innlent Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Innlent „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Innlent Hætt við samkomulag við höfuðpaur hryðjuverkanna 11. september Erlent Íslendingar öllu veðri vanir Innlent Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Innlent Fleiri fréttir Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Hnífstunguárás á Akureyri og vandræði hjá Sjálfstæðisflokknum Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjá meira