Innlent

Drekaútboð frestast - orkumálastjóri sleginn

Fresta verður Drekaútboðinu um þrjá til fjóra mánuði sökum þess að Alþingi afgreiddi ekki nauðsynlegar lagabreytingar. Orkumálastjóri segist sleginn þar sem nú hafi verið lag að bjóða út olíuleit.

Útboðið átti að hefjast þann 1. ágúst og því kom það starfsmönnum Orkustofnunar í opna skjöldu að Alþingi skyldi ekki klára frumvörpin þrjú fyrir þinglok en um þau virtist ekki neinn ágreiningur. Spurður um þessi vinnubrögð Alþingis segir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri að þeir hjá Orkustofnun séu slegnir. Það sé hins vegar Alþingis að setja lögin og eftir þeim verði þeir að starfa.

Venjan er sú að viðkomandi ráðherrar, í þessu tilviki fjármálaráðherra og iðnaðarráðherra, gæti að því í samstarfi við forseta Alþingis og sína þingflokksformenn að nauðsynleg stjórnarfrumvörp fái afgreiðslu. Enginn þessara aðila virðist hafa þrýst á afgreiðslu Drekafrumvarpanna á lokasprettinum. Afleiðingin, að mati orkumálastjóra, er sú að fresta þarf útboðinu um nokkra mánuði.

"Mér sýnis að þetta geti orðið 3-4 mánuðir," svarar Guðni, spurður um seinkunina.

Orkustofnun stóð í síðustu viku fyrir kynningarfundi í Stafangri um útboðið þar sem mættu fulltrúar olíufélaga eins og ExxonMobil, ConocoPhillips, Statoil og Total. Orkumálastjóri segir að menn hafi fundið það í Stafangri að góðar aðstæður séu núna til að bjóða út olíuleit. Veður geti hins vegar skipast fljótt í lofti, eins og gerðist í efnahagshruninu fyrir tveimur árum.

"Það er aldrei gott að bíða ef við höldum að það sé lag," segir Guðni.

-Gætum við kannski misst af stóra tækifærinu vegna þessarar seinkunar?

"Við gætum misst af stóru tækifæri. Við gætum fengið annað stórt tækifæri. Þetta er eins og venjulega, þegar maður stekkur eða bíður, það getur farið á tvo vegu. En ég held að það hefði verið lag núna."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×