Innlent

Stofna Aldarafmælissjóð Háskóla Íslands

Í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands hefur verið ákveðið að koma á laggirnar Aldarafmælissjóði Háskóla Íslands. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lýsti þessu yfir á Alþingi í dag á sérstökum þingfundi til minningar um Jón Sigurðsson . Stofnframlag í sjóðinn á afmælisárinu 2011 er 150 milljónir króna en markmiðið með stofnun hans er að efla rannsóknir og nýsköpun sem nýtast muni til uppbyggingar atvinnulífs og verðmætasköpunar í þágu íslensks samfélags og þjóðar.

„Við mat á árlegu framlagi í sjóðinn verður höfð hliðsjón af hvernig miðar í sókn Háskóla Íslands að markmiðum, eins og þau eru sett fram í stefnu skólans og áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum á framangreindu tímabili eins og þau eru sett fram í stefnu skólans og í samræmi við áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum á framangreindu tímabili," segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

„Sérstakur starfshópur skipaður fulltrúum frá Alþingi, forsætisráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu, mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Háskóla Íslands verður settur á fót og mun meta og gera tillögur um framlög til rannsókna í Aldarafmælissjóðinn á árunum 2012 til 2020."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×