Innlent

Braust inn til fyrrverandi sambýliskonu sinnar og tók húsbúnað

Athugið að myndin er úr safni.
Athugið að myndin er úr safni.
Karlmaður var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í gær fyrir að brjótast tvívegis inn til fyrrverandi sambýliskonu sinnar og tekið þaðan ýmsan húsbúnað sem hann taldi sig eiga.

Maðurinn játaði brot sitt, sem átti sér stað í mars síðastliðnum, skýlaust.

Í niðurstöðu dómsins segir að með hliðsjón af því að maðurinn játaði brot sitt, og því að brot hans beindust að heimili fyrrverandi sambýliskonu hans, en jafnframt því að ekki er að sjá að ásetningur hans hafi staðið til þess að ógna fyrrverandi sambýliskonunni, sem var ekki í íbúðinni er brotið var framið, þykir dómara réttast að dæma manninn í 30 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×