Innlent

Erlendi ferðamaðurinn enn á spítala

Mynd/Stefán Karlsson
Erlendur ferðamaður sem brenndist alvarlega á fæti þegar hann steig ofan í hver í Reykjadal ofan við Hveragerði í gærkvöldi er enn á Landspítalanum í Reykjavík.

Samferðafólk hans vissi ekki hvert það ætti að leita eftir aðstoð og gekk hann skaðbrenndur með fólkinu í klukkustund niður á tjaldstæðið í Hveragerði þar sem fólk hringdi í Neyðarlínuna og lögregla og sjúkralið komu á vettvang.

Talið er að bakki við lítinn hver hafi brostið undan honum með þessum afleiðingum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×