Innlent

Fimmtán ára piltur tekinn með gras í Eyjum

Mynd úr safni
Mynd úr safni
Tvö fíkniefnamál komu upp um helgina í Vestmannaeyjum og var hald lagt á um 6 til 8 grömm af marijúana. Í öðru tilvikinu var um að ræða karlmann á þrítugsaldri en í hinu ungan mann á sextánda ári. Þeir hafa báðir áður komið við sögu lögreglu vegna fíknefnamála. Báðir viðurkenndu þeir að vera eigendur efnanna og teljast málin að mestu upplýst.   

Það sem af er árinu hafa alls átta fíkniefnamál komið til kasta lögreglunnar í Vestmannaeyjum en á síðasta ári voru þau tíu á sama tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×