Innlent

Leikskólakennarar samþykktu verkfall

Leikskóli. Myndin er úr safni.
Leikskóli. Myndin er úr safni.
Leikskólakennarar samþykktu að fara í verkfall í atkvæðagreiðslu í morgun. Verkfallið var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta, eða með rúmum 96 prósentum greiddra atkvæða. Alls greiddu 1523 atkvæði en 1798 voru á kjörskrá.

Aðeins þrjú prósent kusu gegn verkfalli.

Náist ekki samningar á næstu vikum má búast við því að verkfallið hefjist 22. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×