Innlent

Ársafmæli Hægri grænna á 17. júní

Guðmundur Franklín
Guðmundur Franklín
Aðalfundur og ársafmæli Hægri grænna, flokks fólksins, verður haldinn að morgni 17. júní í Tjarnarbíói í Reykjavík.

Meðal þess sem er á dagskrá fundarins er skýrsla formanns, kynning á heimasíðu og almennar umræður.

Einn forsvarsmanna Hægri grænna, Guðmundur Franklín Jónsson, segir meðal áhersluatriða flokksins sé að hækka skattleysismörk í 200 þúsund krónur, lækka eldsneytisskatta um 50% eða 60 krónur á lítra af bensíni og díselolíu, og hefja strax stórframkvæmdir í Helguvík, Grundartanga og á Bakka við Húsavík.

Fundurinn stendur frá klukkan níu að morgni 17. júní, til klukkan ellefu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×