Innlent

Töluverð sjósókn

Mynd/Arnþór
Töluverð sjósókn er nú umhverfis landið og hafa strandveiðibátar auk þess streymt út í nótt eftir lögboðið helgarstopp. Hinsvegar er búið að loka vestursvæðinu þar sem júníkvótinn þar kláraðist fyrir helgi. Töluvert er eftir af kvóta á hinum svæðunum.

Makrílveiðar stóru skipanna fara heldur hægar af stað en vonir stóðu til og sömuleiðis síldveiðar úr norsk- íslenska síldarstofninum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×