Innlent

Lögreglumaður á leið heim stöðvaði þjóf

Mynd/Pjetur
Lögreglumaður, sem var á heimleið eftir vakt undir morgun, sá hvar maður var gangandi með stóran tölvuskjá í Skeifunni í Reykjavík. Þar sem honum varð strax ljóst að ekki var allt með felldu, stöðvaði hann ferð mansins og kallaði á liðsauka til að handtaka hann.

Kom þá í ljós að maðurinn hafði skömmu áður bortist inn í tölvuverslun þar skammt frá og stolið skjánum. Hann gistir nú fangageymslur en skjárinn kemst óskemmdur í hendur eigenda í dag.- 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×