Innlent

Lítil umferð um helgina

Mynd/Daníel
Umferð um nýliðna hvítasunnuhelgi var mun minni en verið hefur undanfarin ár að sögn lögreglumanna víða um land. Sérstaklega var rólegt yfir umferðinni um norðanvert landið og fyrir austan.

Þetta er í samræmi við umferðartölur Vegagerðarinar sem sýna að umferðin á sex mælingastöðum út frá höfuðborgarsvæðinu var tæpum 14 prósentum minni um næst síðustu helgi en hún var sömu helgi í fyrra. Hún var ellefu og hálfu prósenti minni austur fyrir fjall og sextán komma fjórum prósentum minni norður fyrir. Ekki er vitað um alvarleg umferðarslys um helgina.

Ferðaþjónustufyrirtæki á landsbyggðinni hafa vaxandi áhyggjur af minnkandi umferð Íslendinga um landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×