Innlent

Umferð tekin að þyngjast

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. Mynd/Daníel
Umferð til höfuðborgarinnar er tekin að þyngjast og má búast við talsverðri umferð um helstu umferðaræðar til og frá höfuðborgarsvæðinu í dag annan í Hvítasunnu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu. Fjölmargir lögðu land undir fót á föstudaginn og var umferð meiri í gegnum umdæmi lögreglunnar á Akranesi, Borgarnesi og Selfossi, en gengur og gerist miðað við hefðbundnar helgar að sumri til.

Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni á Selfossi hefur umferð í átt að höfuðborgarsvæðinu verið að þyngjast. Hún hefur aftur á móti verið nokkuð jöfn og dreifst vel, að minnsta kosti enn sem komið er í umdæmi lögreglunnar á Akranesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×