Innlent

Óskar eftir tilnefningum vegna fjölmiðlaverðlauna

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra. Verðlaununum er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra. Verðlaununum er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru. Mynd/Valli
Umhverfisráðuneytið óskar eftir tilnefningum til fjölmiðlaverðlauna á Degi íslenskrar náttúru. Ríkisstjórnin ákvað síðastliðið haust, að tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, að tileinka 16. september ár hvert íslenskri náttúru. Markmiðið með deginum er að beina sjónum landsmanna að náttúru landsins, gögnum hennar og gæðum.

Svandís hefur ákveðið að stofna til fjölmiðlaverðlauna sem veitt verða á Degi íslenskrar náttúru. Verðlaununum er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á náttúru landsins eða benda á þær ógnir sem steðja að íslenskri náttúru og mikilvægi þess að varðveita hana og vernda í þágu komandi kynslóða, líkt og það er orðað í tilkynningu.

Verðlaunin verða veitt fjölmiðli, ritstjórn, blaða- eða fréttamanni, dagskrárgerðarfólki eða ljósmyndara sem hafa skarað fram úr með umfjöllun sinni um íslenska náttúru. Til greina koma einstök verkefni eða heildarumfjöllun um íslenska náttúru.

Óskað er eftir tilnefningum til verðlaunanna fyrir 1. ágúst 2011. Tilnefningar með rökstuðningi sendist Umhverfisráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×