Innlent

Ökumaður tekinn tvívegis um helgina undir áhrifum fíkniefna

Mynd/Stefán Karlsson
Karl á þrítugsaldri var tekinn í tvígang fyrir fíkniefnaakstur um helgina. Fyrst var hann stöðvaður í Kópavogi á laugardagskvöld og færður á lögreglustöð en sleppt nokkru síðar en viðkomandi hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.

Fram kemur á vef lögreglunnar að maðurinn hafi ekki látið sér segjast og þess í stað settist hann aftur undir stýri í annarlegu ástandi nokkrum klukkutímum seinna aðfaranótt sunnudags. Þá hafði hann komist yfir annan bíl í Kópavogi og ætlaði að halda uppteknum hætti. Lögreglunni tókst hinsvegar að stöðva för hans en þá reyndi maðurinn að komast undan á hlaupum en hafði ekki erindi sem erfiði. Hann var því handtekinn öðru sinni og var þá jafnframt með fíkniefni í fórum sínum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×