Innlent

Gæti unnið alþjóðlegan meistaratitil.

Hinn ungi og efnilegi skákmaður Hjörvar Steinn Grétarsson náði sínum fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli í gær. 

Hjörvar teflir á alþjóðlegu skákmóti í Búdapest í Ungverjaland og hefur hlotið 5 vinninga í 7 skákum en í áfangann þarf 5 vinninga í 9 skákum. Hann er því efstur 10 keppenda á mótinu. 

Hjörvar hefur möguleika á að krækja sér í stórmeistaraáfanga en til þess þarf hann að vinna báðar skákirnar sem eftir eru en hann á eftir að mæta tveimur sterkum stórmeisturum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×