Innlent

Erilsöm nótt á Selfossi

Nóttin var mjög róleg um allt land en erill var þó á Selfossi.
Nóttin var mjög róleg um allt land en erill var þó á Selfossi.
Nóttin var erilsöm og erfið hjá lögreglunni á Selfossi, en þar fór fram dansleikur á vegum útihátíðarinnar Kótelettunnar og var verulega fjölmennt. Mikið var um ölvun og slagsmál en lögregla býst ekki við að fá margar kærur inn á borð til sín eftir nóttina þar sem enginn slasaðist. Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar þar í bæ fyrir ölvun og óspektir.

Skemmtanahöld gengu að öðru leyti mjög vel fyrir sig um land allt en skemmtistöðum var lokað klukkan 3 vegna hvítasunnudags.

Nóttin var róleg hjá slökkviliði og lögreglu á höfuðborgarsvæðinu og voru allar fangageymslur tómar í Reykjavík í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×