Innlent

Löggan sektar háskólanema og fjölskyldur

Mynd/Egill
Lögreglumenn eru í óðaönn við að sekta bíla fyrir utan Laugardalshöllina, en þar stendur nú yfir seinni hluti brautskráningar frá Háskóla Íslands og því mikill fjöldi fólks þar saman kominn.

Lögreglan hefur verið iðin við það síðustu vikur að sekta þá gesti í Laugardalnum sem freistast hafa til að leggja utan merktra bílastæðasvæða en slíkt virðist vera algengt þegar stórir viðburðir eiga sér stað á svæðinu.

Það er þó vonandi að bílaeigendum þyki það þess virði að greiða sektirnar í skiptum fyrir að fá að fylgjast með fjölskyldumeðlimum útskrifast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×