Innlent

Ræddu misnotkun Rítalíns á Bessastöðum

Ólafur Ragnar Grímsson ræddi vímuefnavarnir við íslenska og erlenda fyrirlesara ráðstefnu SÁÁ.
Ólafur Ragnar Grímsson ræddi vímuefnavarnir við íslenska og erlenda fyrirlesara ráðstefnu SÁÁ.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, bauð íslenskum og erlendum fyrirlesurum ráðstefnu, sem haldin var á vegum SÁÁ, til Bessastaða í gær og ræddi þar meðal annars um vímuefnavarnir og -meðferð auk þeirra neikvæðu áhrifa sem hafa hlotist af af sívaxandi misnotkun Rítalíns hér á landi.



Magnús Gottfreðsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, greindi frá því að af þeim ellefu Íslendingum sem greinst hefðu með HIV það sem af er ári hefðu tíu notað Rítalín. Tveggja einstaklinga væri nú leitað sem deilt hefðu nálum með nýsmituðu fólki og því væri liklegt að réttar tölur væru þrettán smitaðir einstaklingar og þar af tólf sem hefðu sprautað sig með Rítalíni. Jag Khalsa frá bandarísku fíknirannsóknarstofnuninni, sagði þetta jafngilda því að vel yfir tíu þúsund manns hefðu smitast á fyrstu fimm mánuðum ársins í Bandaríkjunum og það myndi þykja háskaleg tíðindi.

Allir þeir sem sóttu Bessastaði heim ítrekuðu að bregðast yrði fljótt við og af festu. Þekkt væri að þeir sem eru nýlega sýktir séu líklegastir til að smita aðra; bæði vegna þess að þeir vissu ekki af smitinu og eins fjölgaði veiran sér örast fyrst eftir smit. Blóð úr nýsýktum einstaklingum er því sérlega hættulegt.

Umræðurnar voru þó ekki einungis á alvarlegu nótunum því einnig var rætt um góðan árangur af forvarnarátökum á Íslandi og starf SÁÁ, sem erlendu gestirnir sögðu til fyrirmyndar og eftirbreytni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×