Innlent

Sólbaðsstemning á höfuðborgarsvæðinu á morgun?

Veðrið brást Reykvíkingum í dag, en þó er ekki öll von úti enn.
Veðrið brást Reykvíkingum í dag, en þó er ekki öll von úti enn.
Margir íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa eflaust verið vonsviknir þegar þeir litu út um gluggann í morgun, en spár um sumarkomu virðast ekki hafa gengið eftir eins og vonir margra stóðu til.

Höfuðborgarbúar þurfa þó ekki að örvænta, því ef marka má Einar Magnús Einarsson, veðurfræðing hjá Veðurstofu Íslands, megum við búast við því að veðrið skáni með kvöldinu auk þess sem sunnudagurinn og mánudagurinn líti ennþá vel út.

Útlit er því fyrir að íbúar höfuðborgarsvæðisins komist loksins í langþráð sólbað á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×