Innlent

Tveggja og fjögurra mánaða fangelsi fyrir Khat-smyglið

Frá blaðamannafundi lögreglunnar.
Frá blaðamannafundi lögreglunnar. Mynd/Valli
Þrír karlmenn voru dæmdir til tveggja mánaða fangelsisvistar og sá fjórði í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir smygl á 58 kílóum af fíkniefninu Khat hingað til lands.

Mennirnir voru handteknir á hóteli í Reykjavík í maí eftir að tollyfirvöld höfðu lagt hald á sex pappakassa með efnunum en mennirnir höfðu ætlað að senda þau til Bandaríkjanna og Kanada.

Þeir þrír sem fengu styttri dóm játuðu og hefja afplánun dóms strax, en sá fjórði neitaði og tók sér áfrýjunarfrest. Honum var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á meðan áfrýjunarfresti stendur eða til 8. júlí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×