Innlent

Handtóku meinta Vítisengla - með fíkniefni og haglabyssur

Hell Angels. Myndin er úr safni.
Hell Angels. Myndin er úr safni.
Tveir karlmenn á þrítugsaldri sem lögreglan telur að séu meðlimir Íslandsdeildar Hells Angels, voru handteknir á miðvikudag við iðnaðarhúsnæði í austurborginni. Við húsleit þar fundust rúmlega 120 kannabisplöntur á nokkrum ræktunarstigum.

Það er mat lögreglu að ræktunin, sem var á tveimur hæðum húsnæðisins, hafi verið þar í nokkurn tíma. Við húsleitina fundust einnig tvær haglabyssur, tvíhleypa og hálfsjálfvirk.

Búið var að sverfa verksmiðjunúmerið af báðum byssunum en ekki liggur fyrir um tilgang þeirra á ræktunarstaðnum.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að vilji meðlima Hells Angels til þess að safna vopnum sé þekktur víða um heim. Haglabyssurnar sæta nú skoðun þar sem ekki liggur fyrir um uppruna þeirra.

Ýmis gögn sem talin eru að tengist Hells Angels klúbbnum fundust á staðnum. Tveir aðrir karlmenn á þrítugsaldri, sem hafa tengingu við klúbbinn, voru einnig yfirheyrðir vegna málsins.

Rannsókn málsins er liður í samvinnu lögreglustjóranna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum sem beinist gegn skipulagðri brotastarfsemi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×