Innlent

Ung fimleikastúlka illa fótbrotin eftir trampólínslys

Fjórtán ára fimleikastúlka gekkst undir mikla aðgerð á Slysadeild Landsspítalans í gærkvöldi, eftir að hafa tví fótbrotnað á báðum fótum þegar hún féll af trampólíni skömmu fyrir æfingu, í íþróttasal Sunnulækjarskóla á Selfossi um sex leitið í gær.

Brotin voru opin á báðum fótum. Hún var flutt í skyndingu á slysadeildina. Þetta gerðist fyrir æfingu, eins og áður sagði, og var hún og vinkonur hennar því ekki undir eftirliti þegar slysið varð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×