Innlent

Grunuð um að flytja fíkni­efni til landsins með tólf ára son í för

Jón Þór Stefánsson skrifar
Tollgæsla á Keflavíkurflugvelli hafði afskipti af konunni. Myndin er úr safni.
Tollgæsla á Keflavíkurflugvelli hafði afskipti af konunni. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Kona sem var ein á ferð ásamt tólf ára syni sínum var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði grunuð um innflutning fíkniefna til landsins frá Spáni.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lögreglunnar, en þar segir að tollverðir hafi haft afskipti af konunni og reynst vera með 160 pakkningar af eiturlyfjum í meltingarvegi. Á meðal fíkniefna hafi verið kókaín.

„Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum hefur málið til rannsóknar en drengurinn er í öruggum höndum barnaverndaryfirvalda á Suðurnesjum,“ segir í tilkynningunni. Einnig kemur fram að rannsókn málsins gangi vel

Þá kemur fram að drengurinn sé ekki talinn tengjast innflutningi fíkniefnanna. Þó þyki ekki ólíklegt að hann hafi verið með í för til þess að villa um fyrir tollgæslu og lögreglu.

Lögreglan segist ekki ætla að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Hún tekur þó fram að ýmislegt sé reynt til að koma ólöglegum fíkniefnum inn í landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×