Innlent

Mun færri erlendar seglskútur í ár en venjulega

Mun færri erlendar seglskútur hafa heimsótt landið það sem af er sumri, samanborið við sama tíma undanfarin ár.

Vaktstöð siglinga hefur ekki skráð nema innan við 30 skútur það sem af er, sem er töluvert minna en síðustu ár.

Yfirleitt eru Íslandssiglinagr á skútum undirbúnar með lögnum fyrirvara, en á vaktstöðinni geta menn sér það til, að þar sem nú sé orðinn kostur á góðum langstímaspám um veðurfar, hætti menn við og sigli annað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×