Innlent

Ferðamenn flýja kuldann fyrir norðan

Þegar lögreglan á Akureyri stöðvaði bíl í grennd við bæinn, við venjulegt eftirlit í nótt, reyndist hann fullur af útlendingum, sem sögðust vera á flótta suður og vestur á bóginn, undan kuldanum.

Þeir höfðu reyst tjöld á tjaldstæðinu við Mývatn í gærkvöldi, en þegar þeir gátu ekki sofnað fyrir kulda, felldu þeir tjöldin og héldu suður á bóginn.

Norðanátt var í Mývatnssveit í nótt og sáralítill hiti. Hitstigið á hálendinu fór sumstaðar niður fyrir eina gráðu í nótt, en hvergi mældist þó næturfrost.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×