Innlent

12 ára stúlkur bólusettar gegn leghálskrabbameini

Talið er að með almennri bólusetningu megi koma í veg fyrir um 60-70% leghálskrabbameins og um 40% alvarlega forstigsbreytinga þess
Talið er að með almennri bólusetningu megi koma í veg fyrir um 60-70% leghálskrabbameins og um 40% alvarlega forstigsbreytinga þess Mynd úr safni
Byrjað verður að bólusetja íslenskar stúlkur í haust við HPV-sýkingum sem geta leitt til leghálskrabbameins.

Landlæknisembættið hefur gert kaupsamning við lyfjafyrirtækið GSK um kaup á bóluefni gegn leghálskrabbameini og HPV-sýkingum. Um er að ræða bóluefnið Cervarix sem notað verður í almennum bólusetningum hjá stúlkum hér á landi.

Bólusetningin hefst í september næstkomandi en á komendi vetri verða tveir árgangar stúlkna bólusettur, þær sem fæddar eru 1998 og 1999. Í framhaldi af því verða 12 ára stúlkur bólusettar árlega.

Talið er að með almennri bólusetningu megi koma í veg fyrir um 60-70% leghálskrabbameins og um 40% alvarlega forstigsbreytinga þess

Hér á landi greinast árlega um 17 konur með leghálskrabbamein og um 300 konur með alvarlegar forstigsbreytingar.

Á vef Landlæknisembættisins kemur fram að full bólusetning felur í sér þrjár sprautur og er áætlað að bólusett verði í skólum landsins en framkvæmd bólusetningarinnar er á ábyrgð heilsugæslunnar. Fræðsluefni til stúlkna og foreldra þeirra verður dreift í byrjun skólaárs 2011.

Þar sem leghálskrabbamein myndast um 20-30 árum eftir HPV sýkingu þá mun líða langur tími þar til að árangur bólusetningarinnar kemur í ljós. Því er mikilvægt að konur fylgi áfram þeim tilmælum sem nú eru í gildi um krabbameinsleit.



Sjá vef Landlæknisembættisins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×