Innlent

Hálendisvegir opna síðar nú en undanfarin ár

Mynd//Pjetur
Opnun hálendisvega er nú um tveimur til þremur vikum á eftir því sem verið hefur undanfarin ár, en allur akstur er enn bannaður á fjölmörgum vegum vegna aurbleytu og hættu á skemmdum.

Samkvæmt starfsmanni vegagerðarinnar er þessi seinkun ekkert óeðlileg. Ástæðan sé einfaldlega sú að síðustu ár hafi verið einstaklega góð.

Vegagerð biður alla þá sem ætla að leggja leið sína upp á hálendið að kynna sér vel hvar umferð er leyfð áður en lagt er af stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×